Veisluþjónusta Hótels Hallormsstaðar


Hótel Hallormsstaður býður uppá fjölbreytt úrval veisluveitinga fyrir einstaklinga eða fyrirtæki við öll tilefni hvort heldur sem er í sölum hótelsins eða í öðrum salarkynnum og heimahúsum. Það er stefna okkar að bjóða faglega þjónustu á sanngjörnu verði. 

Veisluþjónusta Hótels Hallormsstaðar hefur á að skipa starfsfólki með faglega menntun og mikla reynslu í öllu sem snýr að veisluhaldi, skipulagi í veitingum og þjónustu. Starfsfólk sem leggur allan sinn faglega metnað og kunnáttu í að gera veisluna eftirminnilega.

  • Sigrún Jóhanna Þráinsdóttir,  veislu- og markaðsstjóri
  • Gróa Kristín Bjarnadóttir, matreiðslumeistari
  • Hrafnhildur Hólmgeirsdóttir, matreiðslumeistari
  • Nína Heiðrún Óskarsdóttir, framreiðslumaður
  • Þráinn  Lárusson, matreiðslumeistari

Afmæli - Brúðkaup - Fermingar - Þorrablót – Erfidrykkjur – Kaffiveislur.

Fundir - Árshátíðir – Dekurdagar - Hvataferðir – Ættarmót.