Gistiheimilið Grái hundurinn er staðsett að Hjalla í Hallormsstað mitt á milli Hússtjórnarskólans og grunnskólans. Húsið var byggt 1952 af Hrafni Sveinbjarnarsyni og þótti og þykir enn mjög reysulegt. Núverandi eigendur keyptu húsið árið 2004. Á neðstu hæð þess var íbúð sem tekin var til gagngerrar breytingar og er þar gistiheimilið. Þar er gistirými fyrir 10 manns í 6 herbergjum. Fjögur tveggjamanna herbergi og þar af eitt með sér baðherbergi. Tvö einsmanns herbergi og þrjú tveggja manna herbergi deila með sér 2 sameiginlegum baðherbergjum.

Gistiheimilið er rekið allt árið en yfir sumartímann þegar stærri hótelin eru í gangi er morgunverður framreiddur þar en annars er aðgangur að kaffivél og ískáp með vel útilátnum morgunverði.