• An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
  • An Image Slideshow
Nýji matsalurinn tilbúinn Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Í byrjun apríl 2009 var byrjað að grafa fyrir nýbyggingu við herbergjaálmu okkar í Hallormsstað. Á nýbyggingin að rúma 2 matsaliásamt eldhúsi, þvottahúsi og starfsmannaaðstöðu. Í haust tókum við í notkun annan matsalinn til bráðabirgða og þvottahús. Fyrir jólahlaðborðin settum við síðan kraft í að klára matsalinn á efri hæðinni ásamt móttökunni.

 

 

Hér sést þegar verið er að reisa veggina á nýbyggingunni.

  Hér er huggulega sófahornið okkar á móti barnum.

Hér er síðan mynd úr salnum sjálfum 
  Og nýji barinn okkar!

 
Um Hallormsstað Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

Hallormstaður er staðsettur 25 km suður af Egilsstöðum og tekur það innan við hálftíma að aka þangað frá Egilsstöðum. Til gamans má geta þess að á mælikvarða fyrri tíma var þessi leið sjö tíma gangur eða um þriggja stunda reið á vökrum hesti.

Í hugum Íslendinga er Hallormstaður veður- og gróðursæl vin í vindasömu landi. En erlendum ferðamönnum finnst það hvíld að komast úr berangurslegu landslagi á ferðalagi sínu í skógarreit.

 


 


  

Þrátt fyrir að Hallormsstað sé ekki getið neins staðar sem landnámsjarðar né að nafnið tengist neinum stórviðburðum Íslendingasagnanna hefur Hallormstaður verið vel þekktur frá ómunatíð. Þar var snemma kirkja og prestsetur og þótti jörðin búsældarleg bæði víðfeðm og snjólétt. 

Í landi Hallormsstaðar hélt birkiskógurinn velli. Þrátt fyrir að hafa átt undir högg að sækja í gegn um aldirnar og var skógurinn aðeins lítill hluti þess sem nú er. Undir 1900 komst umræðan um friðun Hallormsstaðarskógar  á alvarlegt stig og þann 26. júlí 1899 var samþykkt á Alþingi frumvarp til laga um friðun skógarins. Uppúr því hófust samningarviðræður um kaup ríkisins á Hallormsstað  og náðust samningar 1905

 

 

Óhætt er að segja að ásýnd skógarins hafi breyst mikið alla síðustu öld. Var ýmsum tegundum sáð til tilrauna og má sjá bæði í Guttormslundi og Trjásafninu fjölda erlendra trjátegunda.  Hæsta tré landsins er í Hallormsstað og er það 24,5 m samkvæmt opinberum mælingum.

Fjöldi göngustíga  og slóða er í skóginum og einstakt að njóta þeirra á hestbaki, gangandi eða hjólandi.


 
Ráðstefna um Vatnajökulsþjóðgarð Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Haldin var á Egilsstöðum 23 janúar ráðstefna um Vatnajöklulsþjóðgarð. Voru þar margir áhugaverðir fyrirlesarar og fengu ráðstefnugestir frekari innsýn inn í heim þjóðgarðsins. Hægt er að afla sér frekari upplýsinga um hann á heimasíðu þjóðgarðsins.
 
Birkisafinn flæðir í Hallormsstað Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
Hafin er í Hallormsstað tilraun með nýtingu á birkisafa.
Lesa meira...
 
Free counter and web stats